Fjölmenning og málefni nýbúa - leggðu þitt af mörkum
Fjölmenning og málefni nýbúa er málaflokkur sem snertir samfélagið allt. Það á við um Dalvíkurbyggð eins og önnur samfélög á Íslandi en íbúar eru verðmætasta auðlind hvers samfélags og því mikilvægt að taka vel á móti nýjum íbúum, íslenskum sem erlendum. Með það að leiðarljósi hefur Dalvíkurbyggð ha…
Mannskap vantar í göngur um helgina inn á Böggvisstaðadal. Greitt er fyrir hvern og einn gangnamann.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Val umhverfisstjóra í síma 844 0220.
Lokað fyrir kalda vatnið í dag, fimmtudaginn 14. september, frá Hólavegi og að Mímisvegi
Lokað verður fyrir kalda vatnið frá Hólavegi og að Mímisvegi á Dalvík eftir hádegi í dag, fimmtudaginn 14. september, og fram eftir degi á með unnið er að viðgerð.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Vinnuhópur um mótun læsisstefnu fyrir Dalvíkurbyggð stendur að fræðslufundi um læsi og lestrarnám í Menningarhúsinu Bergi í dag, þriðjudaginn 12. september kl. 17:00 – 18:15. Hann er ætlaður öllum áhugasömum um málþroska, lestur og læsi, s.s. foreldrum, ömmum, öfum, frændum og fænkum því allir í u…
Árið 2015 unnu starfsmenn sveitarfélagsins metnaðarfullt starf sem snéri að þjónustu sveitarfélagsins og í kjölfarið var búin til þjónustustefna Dalvíkurbyggðar. Markmið þess að búa til þjónustustefnu fyrir sveitarfélagið er að efla þennan þjónustuþáttinn í starfsemi þess enda er Dalvíkurbyggð einn …
Auglýst eftir umsóknum í Fræðslu- og verkefnasjóð UMSE
Seinni úthlutun ársins 2017 fer fram 1. nóvember.
Sjóðurinn hét áður Landsmótssjóður UMSE, en nafni hans og reglugerð var breytt á síðasta ársþingi UMSE sem fór fram í Árskógi, 9. mars 2017.
Sjóðurinn hefur frá stofnun stutt vel við margvísleg verkefni. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að öflugara …
Þriðjudaginn 5. september 2017 komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar til að huga að veðurhorfum í þessum mánuði. Að þessu sinni var tilefni til að fara yfir sannleiksgildi síðustu spár og reyndist hún hafa gengið prýðilega eftir eins og við var að búast. Oft er horft til veðurfars á …
Framtíðar skipulag Dalvíkur - skólaverkefni úr Konunglega landbúnaðarháskólanum
Síðastliðinn mánudag opnaði sýning í Bergi menningarhúsi sem byggir á hugmyndum um framtíðar skipulag Dalvíkur –skólaverkefni Árna Steinars Jóhannssonar og félaga úr Konunglega landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn 1976.
Samhliða opnuninni var minning Árna Steinars, umhverfisstjóra og fyrrum Alþin…
Truflun á símasambandi í dag miðvikudaginn 30. ágúst
Vegna vinnu við stofnlögn rafmagns verður símasambandslaust við Skrifstofur Dalvíkurbyggðar frá kl. 15:45 í dag og fram eftir degi.
Við bendum á að á heimasíðu Dalvíkurbyggðar www.dalvikurbyggd.is er að finna svör við ýmsum spurningum. Símasamband verður með eðlilegum hætti á morgun.
Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar fyrir árin 2018- 2021 . Því er auglýst eftir erindum, umsóknum, tillögum og ábendingum íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja í Dalvíkurbyggð um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.
Þeir aðilar sem vilja koma með erindi, umsóknir, tillögur og/eða …
Vinnuhópur um mótun læsisstefnu fyrir Dalvíkurbyggð stendur að fræðslufundi um læsi og lestrarnám í Menningarhúsinu Bergi þriðjudaginn 12. september kl. 17:00 – 18:15. Hann er ætlaður öllum áhugasömum um málþroska, lestur og læsi, s.s. foreldrum, ömmum, öfum, frændum og fænkum því allir í umhverfi b…