Sandvík, Hauganesi – afþreyingar- og ferðamannasvæði-Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi

Sandvík, Hauganesi – afþreyingar- og ferðamannasvæði-Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi

Sandvík, Hauganesi – afþreyingar- og ferðamannasvæði

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og nýtt deiliskipulag

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti þann 20.janúar 2026 að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 1.mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur í sér að afmarkað er nýtt svæði fyrir frístundabyggð í landi Selár og nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Hauganesi. Þá eru þéttbýlismörk Hauganess útvíkkuð til samræmis við mörk frístundabyggðar.

Aðalskipulagstillögu má sjá hér.
Samhliða er auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir afþreyingar- og ferðamannasvæði við Hauganes, skv. 41.gr. skipulagslaga.
Tillagan gerir ráð fyrir uppbyggingu verslunar- og þjónustusvæðis þar sem m.a. gert er ráð fyrir 40 herbergja hóteli og frístundabyggð auk uppbyggingar á útivistar- og baðaðstöðu á svæðinu.
Deiliskipulagstillöguna má nálgast hér:

Þá er jafnframt auglýst samhliða tillaga að breytingu á deiliskipulagsmörkum Hauganess til aðlögunar að mörkum nýs deiliskipulags afþreyingar- og ferðamannasvæðis, skv. 41.gr. skipulagslaga.
Tillöguna má nálgast hér, greinargerð má nálgast hér, skýringarmynd.

Skipulagsgögn má einnig nálgast í Ráðhúsi Dalvíkur og á skipulagsgátt (www.skipulagsgatt.is mál nr. 381/2025 og 383/2025) frá 9.mars til 30.apríl 2026.
Hagsmunaaðilar og íbúar á svæðinu eru hvattir til að kynna sér tillögurnar og koma með athugasemdir ef einhverjar eru. Athugasemdum þar sem nafn, heimilisfang og kennitala sendanda kemur fram má skila á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til Framkvæmdasviðs, Ráðhúsi, 620 Dalvík eða í gegnum Skipulagsgátt til og með 30.apríl 2026.

Skipulagsfulltrúi