Nýtt íbúðarsvæði sunnan Dalvíkur
Drög að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og nýtt deiliskipulag
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar kynnir drög tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 2.mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin tekur til svæðis sem merkt er sem íbúðarsvæði 405-ÍB í gildandi aðalskipulagi og felst í því að svæðið er stækkað til norðurs um 1,2 ha.
Aðalskipulagsuppdrátt má sjá hér.
Samhliða eru kynnt drög að tillögu að deiliskipulagi fyrir nýtt íbúðarsvæði skv. 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir að á svæðinu rísi íbúðarbyggð með allt að 60 íbúðum í fjölbreyttum húsnæðisgerðum. Lögð verður áhersla á gott aðgengi svæðisins með öruggum gönguleiðum, haganlega staðsetningu íbúðarhúsa m.t.t. skjóls og birtu og blágrænar ofanvatnslausnir.
Deiliskipulagstillöguna má sjá hér, greinargerð hér og skýringarmyndir hér
Skipulagsuppdrætti ásamt greinargerð má jafnframt nálgast í Ráðhúsi Dalvíkur frá 21.maí til 5.júní 2025 og á Skipulagsgátt: skipulagsgatt.is undir málum nr. 85/2024 og 685/2025.
Ábendingum þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram má skila á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til Framkvæmdasviðs, Ráðhúsi, 620 Dalvík eða í gegnum Skipulagsgátt.
Frestur til að koma á framfæri ábendingum við skipulagstillögurnar er veittur til 5.júní 2025.
Skipulagsfulltrúi