Dalvíkurbyggð auglýsir laus til umsóknar veiðileyfi í Svarfaðardalsá

Dalvíkurbyggð auglýsir laus til umsóknar veiðileyfi í Svarfaðardalsá

Dalvíkurbyggð hefur til umráða 18 stangir í Svarfaðardalsá, svæði 1, á tímabilinu frá 15. júlí til og með 9. september 2022.

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt að auglýsa leyfin til umsóknar fyrir íbúa Dalvíkurbyggðar 67 ára og eldri og fyrir ungmenni 18 ára og yngri.

Dregið verður úr innsendum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 13. júlí næstkomandi og umsóknina má finna HÉR.

Allar nánari upplýsingar um svæðið má finna á heimasíðu Veiðitorgs.
https://veiditorg.is/areas/svarfadardalsa