Veiðileyfi í Svarfaðardalsá - svæði 1

Dalvíkurbyggð hefur til umráða 18 stangir í Svarfaðardalsá, svæði 1, á tímabilinu frá 15. júlí til og með 9. september 2022.

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt að auglýsa leyfin til umsóknar fyrir íbúa Dalvíkurbyggðar 67 ára og eldri og fyrir ungmenni 18 ára og yngri.

Hver stöng jafngildir hálfum degi.

Dregið verður úr innsendum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 13. júlí næstkomandi.

Allar nánari upplýsingar um svæðið má finna á heimasíðu Veiðitorgs.
https://veiditorg.is/areas/svarfadardalsa

Nánari upplýsingar veitir Silja Dröfn Jónsdóttir, þjónustu- og upplýsingafulltrúi á netfanginu silja@dalvikurbyggd.is eða í síma 460 4908.