Ferðaþjónusta og frístundabyggð í landi Selár á Hauganesi - Niðurstaða sveitarstjórnar

Ferðaþjónusta og frístundabyggð í landi Selár á Hauganesi - Niðurstaða sveitarstjórnar

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti þann 5. júní sl. breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna áforma um uppbyggingu ferðamanna- og afþreyingarsvæðis við Sandvík á Hauganesi í samræmi við 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Á sama fundi var samþykkt tillaga að deiliskipulagi svæðis fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga.

Tillögurnar fela í sér að afmarkað er nýtt svæði fyrir frístundabyggð í landi Selár og nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Hauganesi þar sem m.a. er gert ráð fyrir 40 herbergja hóteli auk uppbyggingar á útivistar- og baðaðstöðu á svæðinu.. Þá eru þéttbýlismörk Hauganess útvíkkuð til samræmis við mörk frístundabyggðar.

Endanleg skipulagsgögn má nálgast hér fyrir neðan:

Tillögurnar voru auglýstar frá 9. mars til 30. apríl 2026. Fimm athugasemdir bárust sem leiddu ekki til efnislegra breytinga á skipulaginu. Skipulagstillögurnar hafa verið sendar Skipulagsstofnun til athugunar og munu þær taka gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Þau sem óska nánari upplýsinga um tillögurnar og niðurstöðu sveitarstjórnar geta sent fyrirspurn á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is

Skipulagsfulltrúi