Drög að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og nýtt deiliskipulag.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar kynnir hér með drög tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 2.mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í því að skilgreint er nýtt iðnaðarsvæði og efnistökusvæði í Þorvaldsdal þar sem Arctic Hydro áformar að reisa 5,0 MW vatnsaflsvirkjun.
Samhliða er unnið deiliskipulag fyrir framkvæmdina og er sú tillaga kynnt samhliða aðalskipulagsbreytingu, skv. 4.mgr. 40. gr skipulagslaga.
Skipulagsgögn má nálgast hér:
Aðalskipulagsbreyting
Deiliskipulagsuppdráttur
Deiliskipulagsgreinargerð
Tillöguuppdrætti ásamt greinargerðum og umhverfisskýrslu má jafnframt nálgast í Ráðhúsi Dalvíkur og í Skipulagsgátt: skipulagsgatt.is (mál nr. 214/2025 og 215/2025) frá 26.júní til 23.júlí 2025.
Ábendingum þar sem nafn, kennitala og heimilisfang kemur fram má skila á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til Framkvæmdasviðs, Ráðhúsi, 620 Dalvík eða í gegnum Skipulagsgátt.
Frestur til að koma á framfæri ábendingum við skipulagstillöguna er veittur til 23.júlí 2025.
Skipulagsfulltrúi