Árskógssandur – ný íbúðabyggð
Breyting á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar auglýsir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í því að íbúðarsvæði 706-ÍB er stækkað um 3,7 ha fyrir nýja íbúðabyggð. Jafnframt eru þéttbýlismörk útvíkkuð þannig að þau nái yfir núverandi lóðir sunnan og austan Aðalbrautar meðfram bökkum Þorvaldsdalsár.
Aðalskipulagsuppdrátt má sjá hér.
Samhliða er auglýst tillaga að deiliskipulagi fyrir nýtt íbúðarsvæði skv. 2.mgr. 41.gr. skipulagslaga.
Meginmarkmið deiliskipulagstillögunnar er uppbygging íbúðarhúsnæðis á Árskógssandi. Íbúðabyggðinni er skipt í þrjú svæði fyrir blandaða byggð, stór einbýlishús og smáíbúðabyggð.
Deiliskipulagsgögn má sjá hér: deiliskipulagsuppdráttur, greinargerð, Skýringaruppdráttur 1, Skýringaruppdráttur 2, Skýringaruppdráttur 3, Skýringaruppdráttur 4, Skýringaruppdráttur 5, Skýringaruppdráttur 6, Skýringaruppdráttur 7, Skýringaruppdráttur 8.
Skipulagsuppdrætti ásamt greinargerð má jafnframt nálgast í Ráðhúsi Dalvíkur frá 15.janúar til 2.mars 2026 og á Skipulagsgátt: skipulagsgatt.is undir málum nr. 84/2024 og 692/2025.
Athugasemdum þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram má skila á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til Framkvæmdasviðs, Ráðhúsi, 620 Dalvík eða í gegnum Skipulagsgátt.
Frestur til að koma á framfæri ábendingum við skipulagstillögurnar er veittur til 2.mars 2026.
Skipulagsfulltrúi