Dalvíkurbyggð kynnir nú tillögur að nýrri slökkvistöð við Ólafsfjarðarveg á Dalvík. Um er að ræða sameiginlega aðstöðu fyrir slökkvilið, lögreglu og sjúkraflutninga sem ætlað er að bæta starfsaðstöðu viðbragðsaðila og styrkja öryggisinnviði sveitarfélagsins.
Samkvæmt tillögunum verður byggingin alls um 1.052 fermetrar að stærð og skiptist í tvo meginhluta; annars vegar mannvistarhluta og hins vegar tækjasal fyrir viðbragðsbifreiðar og búnað. Mannvistarhlutinn verður um 340 fermetrar en tækjasalurinn um 712 fermetrar.
Í greinargerð kemur fram að nýja stöðin verði staðsett á nýrri lóð suðaustan við fótboltavöllinn við Ásgarð, með aðkomu frá Ólafsfjarðarvegi. Sérstök áhersla er lögð á gott aðgengi fyrir alla og skilvirka aðstöðu fyrir viðbragðsaðila.
Byggingin er hönnuð með það að markmiði að sameina starfsemi slökkviliðs og lögreglu undir sama þaki ásamt sameiginlegum rýmum fyrir sjúkraflutninga. Í húsinu verða meðal annars vinnurými, kaffistofa, búningsaðstaða, verkstæði, þvottaaðstaða, tækjarými og sérútbúnir salir fyrir viðbragðsbifreiðar.
Tillöguteikningar sýna einnig 3D sjónmyndir af byggingunni, grunnmyndir og skiptingu húsnæðisins. Mannvistarhlutinn verður byggður með steyptu burðarkerfi og loftræstri ál- og timburklæðningu, en tækjasalurinn verður stálgrindarhús með samlokueiningum.
Með verkefninu er stefnt að því að skapa nútímalega og sameiginlega aðstöðu fyrir viðbragðsþjónustu á Dalvík sem styður við hraðari og skilvirkari þjónustu við íbúa sveitarfélagsins.
Hér má sjá teikningar og greinargerð að nýrri slökkvistöð.