Yngri barna kennara vantar í Dalvíkurskóla skólaárið 2012-2013

Dalvíkurskóli auglýsir hér eftir yngri barna kennara skólaárið 2012 - 2013.

Hæfniskröfur:
- Grunnskólakennaramenntun
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
- Metnaðarfullur í starfi og hæfni til að vinna í hóp
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Tilbúinn að takast á við nýjar og fjölbreyttar áherslur í skólastarfi
- Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum kennsluaðferðum svo sem Byrjendalæsi og útikennslu

Dalvíkurskóli er 260 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru þekking, færni, virðing og vellíðan. Í yngri deild skólans er unnið eftir Byrjendalæsi og þróunarverkefninu Töfraheimi stærðfræðinnar (sem gengur út á að efla kennara í stærðfræðikennslu). Dalvíkurskóli er skóli á Grænni grein og mun flagga Grænfánanum í vor. Í skólanum er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð eru að innleiða Uppbyggingarstefnuna.


Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason skólastjóri Grunnskóla Dalvíkurbyggðar gisli@dalvikurskoli.is  símar 4604980 og 8631329. Katrín Fjóla Guðmundsdóttir deildastjóri katrin@dalvikurskoli.is  símar 4604980 og 8479810. Senda skal umsókn ásamt menntun og starfsferilskrá á netfangið gisli@dalvikurskoli.is  


Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð, um 40 km. norðan við Akureyri. Sveitarfélagið er framsækið og leggur metnað sinn í að veita íbúum góða þjónustu. Þar er blómlegt menningarlíf og fjölbreyttir möguleikar til íþróttaiðkunar og útivistar. Sveitarfélagið á metnaðarfulla skólastefnu. Að búa í Dalvíkurbyggð er kjörið fyrir fólk á öllum aldri, barnafjölskyldur, útivistarfólk og þá sem vilja njóta nálægðar við náttúruna. Það er ómetanlegt að geta stigið út úr erli hvunndagsins og dregið að sér kraft sjávarins og fjallanna og endurnært þannig sálina.