1 í einangrun og 3 í sóttkví í Dalvíkurbyggð samkvæmt stöðulista

1 í einangrun og 3 í sóttkví í Dalvíkurbyggð samkvæmt stöðulista

Upplýsingar dagsins á stöðulista Lögreglunnar á Norðurlandi eystra liggja fyrir og nú er ljóst að 1 er í einangrun með staðfest smit og 3 eru í sóttkví í Dalvíkurbyggð. Enn er vöxtur í smitum vegna Covid í umdæmi Norðurlands eystra og mátti alltaf reikna með að á einhverjum tímapunkti myndu greinast einstaklingar innan okkar sveitarfélags. Því er full ástæða til að ítreka enn og aftur mikilvægi þess að gæta að sóttvörnum og halda reglur sóttvarnalæknis.

Upplýsingar um ferli, fyrir íbúa:

Fái einstaklingur greiningu um að hann sé með Covid er unnið út frá því að allir sem í miklu návígi við hann voru 24klst áður en einkenni gerðu vart við sig skulu fara í sóttkví. Þegar átt er við mikið návígi er talað um innan við tvo metra í meira en fimmtán mínútur. Þó einstaklingur fari í sóttkví þá fer fjölskylda þess aðila ekki endilega líka í sóttkví og er því mikilvægt að leggja sig fram við að halda reglum um sóttkví í lengstu lög á heimili eða kljúfa sig frá öðrum meðan á sóttkví stendur.

Æskilegt er að þeir sem voru í mestu návígi við greindan einstakling fari strax í sóttkví og er hún þá sjálfskipuð á þeim tímapunkti á meðan rakningarteymi vinnur. Álag á rakningarteyminu er mikið og því er mikilvægt er að hafa Rakning C-19 appið uppsett á síma sínum til að aðstoða við rakningu.

Hvað má ekki gera í sóttkví:

Ekki fara til vinnu eða í skóla, ekki fara á mannamót að neinu tagi, ekki fara sjálfur í búð, apótek, veitingastaði, sundlaugar eða annað þar sem fólk kemur saman á og ekki fara út að keyra.
Það má ekki taka á móti gestum, ekki dvelja í sameiginlegum rýmum, eða útivistasvæðum.
Börn sem ekki hafa þroska til að halda fjarlægð við foreldra í sóttkví eða huga að eign hreinlæti verða að vera með foreldrum í sóttkví.

Hvað má gera:

Það má fara út á svalir og í garð sem er til einkanota, það má fara í gönguferðir í nærumhverfi sóttkvíarstaðar en þarf að halda a.m.k 1m fjarlægð frá öllum öðrum vegfarendum. Börn foreldra sem eru í sóttkví mega fara í skóla og út að leika ef þau hafa þroska til að halda fjarlægð við foreldra og sinna eigin hreinlæti. Börn mega ekki fá gesti á heimilið.

Á heimasíðu Landlæknis eru frekari upplýsingar í meiri smáatriðum. Hér að neðan má nálgast þær upplýsingar: 

Leiðbeiningar fyrir almenning varðandi heimasóttkví
Börn í sóttkví – leiðbeiningar og tillögur til forráðamanna

Ég biðla enn til íbúa um að sýna fulla aðgát og standa saman í baráttunni við vágestinn.

Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri.