Vorsýning Leikbæjar

Vorsýning leikskólans Leikbæjar verður haldin fimmtudaginn 11. maí kl. 17:00-18:30 í Leikbæ. Börnin verða með söngskemmtun kl. 17:30 og er aðgangseyrir kr. 600 fyrir fullorðna, 300 fyrir börn 6 ára og eldri og frítt fyrir börn yngri en 6 ára.

Innifalið í verðinu er kaffihlaðborð í félagsheimilinu Árskógi en þetta er liður í fjáröflun foreldrafélagsins.