Vorhreinsun í Dalvíkurbyggð

Vorhreinsun í Dalvíkurbyggð

Árviss vorhreinsun í Dalvíkurbyggð hefst núna þriðjudaginn 26. – til 29. maí en þá taka allir höndum saman, íbúar og bæjarstarfsmenn, um að hreinsa og fegra sveitarfélagið. Íbúar Dalvíkurbyggðar eru því hvattir til að hreinsa lóðir sína en starfsmenn bæjarins verða á ferðinni þessa daga og fjarlægja garðúrgang sem fólk hefur sett utan við lóðarmörk sín.

Einnig er bent á garðaúrgangsgáma á gámasvæðinu á Dalvík, við Hinriksmýri á Árskógssandi og við Aðalgötuna á Hauganesi. Almennt sorp sem fólk safnar saman á opnum svæðum á að fara í poka og setja það á áberandi stað þar sem bæjarstarfsmenn fjarlægja það síðan.

Þessa dagana er verið að sópa götur þéttbýlisstaða í sveitarfélaginu og í framhaldinu verða þær þvegnar. Íbúar eru því hvattir til að skola innkeyrslur og jafnvel gangstéttar við hús sín og nýta það að götusópar taki það rusl sem þa ðan kemur.

Athugið:
- Garðaúrgang skal setja út við lóðamörk í pokum, greinaafklippur (langar greinar) skal binda í knippi.
- Óheimilt er að flytja lausan jarðveg út fyrir lóðamörk og verður slíkt fjarlægt á kostnað lóðarhafa.
- Rusl af byggingarlóðum verður ekki fjarlægt.
- Íbúar þurfa sjálfir að koma spilliefnum í endurvinnslustöð, enn fremur timbri, málum og öðru rusli.

Ekki er mögulegt að fjarlægja heil tré eða trjástofna.

Járn:
Brotajárn á að fara í járnagáma við gámasvæðið. Bændur eru hvattir til að fara með allt brotajárn að þjóðvegi þar sem það verður sótt.
Frh. á næstu síðu
Bifreiðar, bílflök og aðrir lausafjármunir:
Á sama tíma mun Heilbrigðiseftirlitið líma tilkynningu um að fjarlægja bifreiðar og lausafjármuni sem standa á víðavangi og í kjölfarið láta fjarlægja það á kostnað eigenda ef ekki verður brugðist við

Gámar:
Gámaeigendur eru beðnir um að fjarlægja alla lausamuni ofan af gámum og það sem liggur í kringum þá.

Umhverfis- og tæknisvið Dalvíkurbyggðar