Vorhátíð Dalvíkurskóla haldin á fimmtudaginn

Vorhátíð Dalvíkurskóla verður haldin fimmtudaginn 17. maí frá klukkan 11:00 til 14:00. Meðal þess sem boðið verður upp á er opið hús þar sem vinna nemenda verður til sýnis, kaffihúsastemning í hátíðarsalnum, förðun og andlitsmálning, ýmsir leikir, hestar og ís fyrir alla. Foreldrafélagið verður einnig á staðnum með skólapeysur til mátunar.Skólinn verður opinn öllum þeim sem vilja skemmta sér saman og skoða afrakstur af vinnu nemenda síðastliðið skólaár.