Vorhátíð Dalvíkurskóla

Halló krakkar, pabbar og mömmur, afar og ömmur, frænkur og frændur !!

Vorhátíð Dalvíkurskóla verður laugardaginn 14.maí frá klukkan 11:30 til 14:30. Þennan dag verður skólinn opinn öllum sem vilja skemmta sér saman og skoða afrakstur af vinnu nemenda.

Meðal þess sem boðið verður upp á er:

Opið hús þar sem vinna nemenda verður til sýnis.

•Kaffihúsastemmning í hátíðarsalnum. (9. bekkur selur kaffi og meðlæti á 700 kr. fyrir 14 ára og eldri, 300 kr. fyrir börn 6-13 ára. Frítt fyrir yngri börn).
•Förðun og andlitsmálning.
•Lukkupakkar sem 6. bekkur hefur til sölu á 200 kr. stk.
•Hestar og hjólavöllur (fer eftir veðri).
•Spilastofa.
•Golf – kynning á tjaldsvæði.
•Ásadans.
•Allir fá ís í boði foreldrafélagsins.
•Sýning á námsmöppum hjá 1. – 10. bekk.
•Bókasafn – opið.
•Knattspyrnuþrautir á sparkvelli.
•Boccia
•Myndasýning Skíðafélags Dalvíkur
•Fimleikasýning í boði Fimleikadeildar
•Flóamarkaður


Foreldrafélag, nemendur og starfsfólk Dalvíkurskóla.