Vorhátíð Dalvíkurskóla 17. maí

Halló krakkar, pabbar og mömmur, afar og ömmur, frænkur og frændur !!


Vorhátíð Dalvíkurskóla verður fimmtudaginn 17.maí frá klukkan 11:30 til 13:30. Þennan dag verður skólinn opinn öllum sem vilja skemmta sér saman og skoða afrakstur af vinnu nemenda.


Meðal þess sem boðið verður upp á er:

 Opið hús þar sem vinna nemenda verður til sýnis
 Kaffihúsastemmning í hátíðarsalnum. (9. bekkur selur kaffi og meðlæti á 700 kr. fyrir 14 ára og eldri, 300 kr. fyrir börn 6-13 ára. Frítt fyrir yngri börn)
 Förðun og andlitsmálning
 Lukkupakkar sem 6. bekkur hefur til sölu á 200 kr. stk
 Hestar
 Hjólavöllur
 Spilastofa
 Ásadans
 Allir fá ís í boði foreldrafélagsins
 Sýning á námsmöppum hjá 1. – 10. bekk
 Bókasafn
 Flóamarkaður


Foreldrafélag, nemendur og starfsfólk Dalvíkurskóla.