Vorferð Leikbæjar

Foreldrafélag Leikbæjar bauð krökkunum í vorferð nú á dögunum og var farið í Steindyr í Svarfaðardal. Þar fengu krakkarnir að fara í fjósið og mjólka ásamt því að fá að fara á bak á eina kúna.
Einnig kíktum þau í fjárhúsin á litlu lömbin. Foreldrafélagið fær miklar þakkir fyrir sem og allir á Steindyrum fyrir frábærar móttökur.

Sjá nánar á www.leikbaer.dalvik.is en þar má finna skemmtilegar myndir frá heimsókninni.