Vistvernd í verki

Dalvíkurbyggð hefur fengið að láni kynningarbás Landverndar fyrir verkefnið Vistvernd í verki.

Á básnum má finna ýmsar upplýsingar um vistvernd í verki. Þar eru upplýsingar um ýmislegt sem lítur að umhverfisvænum lifnaðarháttum t.d. jarðgerð, hreyfilhitara, rafmangssparnað, flokkun sorps og fleira.

Einnig má á básnum finna upplýsingar frá Dalvíkurbyggð um Staðardagskrá 21 sem við erum þátttakendur í.

Básinn er staðsettur á Bókasafni Dalvíkurbyggðar út mánuðinn og eru allir velkomnir til að skoða og kynna sér efnið sem er á básnum.