Vísindalaut

Vísindalaut

Við tókum nýlega í notkun nýja laut. Hún kallast Vísindalaut og er í litla rýminu við hliðina á eldhúsinu. Þar er hugsunin að börnin geti fiktað og prófað sig áfram í allskonar tilraunum. Við fengum í vikunni gamalt videotæki sem nokkrir drengir skrúfuðu í sundur. Þegar lokið fór af kom í ljós að videospóla var föst í tækinu, spóla með Nemó. Upphófst mikið kapp í að bjarga Nemó úr tækinu sem tókst svo á endanum, við mikinn fögnuð barnanna! Hér má sjá nokkrar myndir af þessu ferli.