Vinnustofa um þróun ferðapakka og skilgreining á seglum

Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi boðar til fundar á meðal ferðaþjónustuaðila í Dalvíkurbyggð. Fundurinn er vinnustofa um þróun ferðapakka og skilgreiningu á helstu seglum í ferðaþjónustu í Dalvíkurbyggð. Fundurinn verður haldinn í skíðaskálanum í Böggvisstaðafjalli fimmtudaginn 14. nóvember frá kl. 9:00-12:00.

Skráning fer fram á netfangið info@nordurland.is