Vinnuskólinn hefst mánudaginn 11. júní

Vinnuskólinn hefst mánudaginn 11. júní

Nemendur Vinnuskólans eiga að mæta í Kyndil (á móti Steypustöðinni) mánudaginn 11. júní kl. 8:30 (nema þeir sem eru bara skráðir eftir hádegi, þeir mæta kl. 12:30).

Búið er að kalla alla nemendur í viðtal. Ef einhver kannast ekki við að hafa farið í viðtal en telur sig hafa skráð sig í Vinnuskólann er hann beðinn um að hafa samband við Jóhann Má, forstöðumann Vinnuskólans, í síma: 867-0939.