Vinnuhópur leggur fram tillögur um framtíðarheimili Byggðasafns Dalvíkurbyggðar

Vinnuhópur leggur fram tillögur um framtíðarheimili Byggðasafns Dalvíkurbyggðar

Dalvíkurbyggð kynnir hér niðurstöður þarfa- og valkostagreiningar vegna framtíðarheimilis Byggðasafns Dalvíkurbyggðar ásamt fyrstu hugmyndum að nýju safnahúsi við Menningarhúsið Berg.

Í greinargerð vinnuhópsins kemur fram að núverandi aðstæður byggðasafnsins séu ófullnægjandi þar sem safnið hafi í dag ekkert opið sýningarrými fyrir almenning og allur safnkostur sé varðveittur í geymslum á tveimur stöðum.
Vinnuhópurinn skoðaði fjóra mögulega valkosti fyrir framtíðarhúsnæði safnsins:

  • Ráðhúsið
  • Nýbyggingu eða viðbyggingu við Berg
  • Gamla skóla
  • Gamla frystihúsið

Niðurstaða hópsins er að leggja til að farið verði áfram með valkost B, sem felur í sér nýbyggingu eða viðbyggingu við Menningarhúsið Berg. Hópurinn telur þann kost hagkvæmastan til framtíðar með tilliti til rekstrar, samnýtingar starfsfólks, staðsetningar og áframhaldandi uppbyggingar menningarlífs í Dalvíkurbyggð.
Samhliða greinargerðinni hafa verið kynntar frumhugmyndir að nýju safnahúsi undir yfirskriftinni „Berg til framtíðar“. Þar eru settar fram hugmyndir að fjölnota menningarhúsi sem tengist Bergi með nýjum byggingarhlutum og samnýttum rýmum. Hugmyndirnar gera meðal annars ráð fyrir:

  • Nýju sýningarrými fyrir byggðasafnið
  • Fjölnota sal
  • Vinnuaðstöðu
  • Kaffiaðstöðu
  • Aukinni tengingu milli menningarstarfsemi á svæðinu.

Í kynningargögnum kemur einnig fram að sérstök áhersla sé lögð á sveigjanleg sýningarrými, góða aðstöðu fyrir varðveislu safngripa og að byggingin styrki miðbæjarsvæðið og menningarlíf Dalvíkur til framtíðar.

Vinnuhópurinn leggur til að undirbúningur hefjist sem fyrst, meðal annars vegna nauðsynlegs skipulagsferlis og frekari kynningar á verkefninu fyrir samfélagið.
Hér má sjá tillögu af viðbyggingu við Berg.
Hér má lesa greinagerð og þarfagreiningu vinnuhópsins.