Vikan 19.-23.sept

Vikan 19.-23.sept

 

Elsku vinir. Vikan 19. - 23. september verður fjörug og lífleg fyrir nemendur í 8. - 10.bekk. Á mánudagskvöldið verðum við með kaffihúsakvöld þar sem allir geta gætt sér á heitu kakói, spilað spil og hlustað á ljúfa tónlist. Á miðvikudagskvöldið verðum við með Pógóbræðing þar sem einn kóngur mun standa uppi sem sigurvegari. Úlfar er búinn að vera í grimmum undirbúningi að undanförnu og lofar sigri. Báðir þessir viðburðir eru frá 19:30-22:00 þessa daga.

Loks munum við vera með Videokvöld á föstudaginn. Þar munum við sýna einhverja góða mynd á skjávarpanum inn í sal og geta áhugasamir pantað sér pizzu. Við munum ekki sjá um pizzurnar en áhugasamir geta hópað sig saman og pantað hjá Tommunni. Videokvöldið byrjar klukkan 20:00 og lýkur klukkan 23:00.