Viðvera menningfulltrúa vegna umsókna í Menningarráð Eyþings

Á morgun, föstudaginn 23. nóvember, er menningarfulltrúi Eyþings, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, með viðveru í Bergi vegna úthlutunar á menningarstyrkjum og stofn- og rekstrarstyrkjum Menningarráðs Eyþings fyrir árið 2013.

Sjá nánari hér fyrir neðan:

Menningarráð Eyþings auglýsir til umsóknar verkefnastyrki til menningarstarfs á Norðausturlandi og stofn- og rekstrarstyrki


Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Eyþing. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Norðausturlandi.

Áherslur ársins 2013
Menningarráðið leggur jafnan áherslu á að þau verkefni sem hljóta styrki efli á einhvern hátt samstarf og/eða samvinnu í menningarmálum á Norðurlandi eystra eða dragi fram menningarleg sérkenni svæðisins. Auk þessa hefur ráðið ákveðið að árið 2013 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

• Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðarlaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja íbúa á Norðurlandi eystra.
• Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum, listnema og leikmanna.
• Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar, lista og menningartengdrar ferðaþjónustu.
• Verkefni sem fela í sér samstarf við önnur lönd á sviði menningar og lista.

Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2012. Úthlutun fer fram í febrúar.


Styrkþegar verða að hafa skilað inn greinargerð vegna fyrri verkefna til þess að geta sótt um vegna ársins 2013. Úthlutað verður einu sinni á árinu 2013.
Verkefnum sem hljóta styrki þarf að vera lokið fyrir árslok 2013.

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings www.eything.is  eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu 29, 3. hæð. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur menningarráðs á heimasíðu Eyþings www.eything.is

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is


Menningarráð Eyþings auglýsir stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála (styrkir sem Alþingi veitti áður)

Menningarráð Eyþings auglýsir nú í annað sinn eftir umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki á grundvelli viðauka menningarsamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis við Eyþing.

Tilgangur styrkjanna er að efla starfsemi á sviði lista, safna og menningararfs. Styrkirnir miðast við starfsemi árið 2013.

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings www.eything.is  eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu 29, 3. hæð. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur menningarráðs vegna stofn- og rekstrarstyrkja á heimasíðu Eyþings www.eything.is

Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2012.

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is



Menningarráð Eyþings auglýsir viðveru menningarfulltrúa í sveitarfélögum í Eyþing vegna úthlutunar á menningarstyrkjum og stofn- og rekstrarstyrkjum 2013.

Viðtalstímar menningarfulltrúa verða sem hér segir:


Akureyri 15. og 16. nóvember kl. 9-12 Skrifstofu menningarfulltrúa, Strandgötu 29, 3. hæð
Hrísey 22. nóvember kl. 14.-15.30 Húsi Hákarla Jörundar
Dalvík 23. nóvember kl. 10-12 Menningarhúsinu Bergi, 2. hæð
Ólafsfjörður 23. nóvember kl. 13-14 Bæjarskrifstofu Ólafsfjarðar
Siglufjörður 23. nóvember kl. 14.30-16 Bæjarskrifstofu Siglufjarðar
Laugum 26. nóvember kl. 10-11.30 Skrifstofu Þingeyjarsveitar
Mývatnssveit 26. nóvember kl. 13-14 Skrifstofu Skútustaðahrepps
Grímsey 27. nóvember kl. 14.-16 Félagsheimilinu Múla
Kópasker 28. nóvember 10.30-12 Skrifstofu Norðurþings
Raufarhöfn 28. nóvember kl. 13-14.30 Skrifstofu Norðurþings
Þórshöfn 29. nóvember kl. 9-11 Skrifstofu Langanesbyggðar Þórshöfn
Bakkafjörður 29. nóvember kl. 12.30-13.30 Grunnskólanum Bakkafirði
Húsavík 30. nóvember kl. 10-12 Menningarmiðstöð Þingeyinga
Grenivík 3. desember kl. 13-14 Skrifstofu Grýtubakkahrepps
Akureyri 4. og 5. desember kl. 13-16 Skrifstofu menningarfulltrúa, Strandgötu 29, 3. hæð
Viðtalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi