Videokvöld

Videokvöld

 

Eins og alþjóð veit þá erum við nýbúin að fá frábært videoherbergi upp í Víkurröst. Þar erum við búin að versla okkur heimabíó sem fær hárin til að rísa. Á föstudaginn ætlum við að hafa kózý Videokvöld þar sem allir geta mætt í þægilegum fötum, verslað sér smá góðgæti og horft á góða kvikmynd í góðra vina hópi. Maggi verður fyrir sunnan með Stílsliðinu og mun hann Stefán Hrafn hlaupa í skarðið. Tökum vel á móti Stebba og höfum það náðugst í skammdeginu. Húsið opnar klukkan 20:00 en lokar klukkan 23:00.