Viðburðir sumarið 2009

Í dag verður dreift í hús í sveitarfélaginu viðburðabæklingi fyrir sumarið 2009. Eins og sjá má í honum eigum við skemmtilegt sumar í vændum hérna í sveitarfélaginu og ýmislegt spennandi í boði. Allir þessir viðburðir eru líka í viðburðadagatalinu okkar hérna á vefnum. Enn er hægt að senda inn viðburði til þess að setja inn á vefinn og því eru allir hvattir til að kíkja reglulega þangað inn til þess að sjá hvort eitthvað nýtt hafi bæst við. 

Njótum sumarsins og samverunnar :o)