Viðburðir fyrir aðventu- og jól

Viðburðir fyrir aðventu- og jól

Síðustu ár hefur verið hefð að gefa út viðburðadagatal fyrir jól og áramót sem dreift er í öll hús í Dalvíkurbyggð. Viðburðardagatalinu verður dreift í hús í byggðalaginu fyrir fyrstu helgi í aðventu.

Þeir sem hafa áhuga á því að koma að viðburði í dagatalinu geta gert það með því að senda upplýsingar á netfangið irish@dalvikurbyggd.is   fyrir 15. nóvember næstkomandi.