Viðburðadagatal fyrir jól og áramót

Síðustu ár hefur verið hefð að gefa út viðburðadagatal fyrir jól og áramót sem dreift er í öll hús í Dalvíkurbyggð. Venjulega hefur viðburðadagatalinu verið dreift í hús fyrir fyrstu helgi í aðventu, sem í ár er síðasta helgin í nóvember. Þeir sem hafa áhuga á því að koma að viðburði í dagatalinu geta gert það með því að senda upplýsingar á netfangið margretv@dalvikurbyggd.is fyrir 20. nóvember næstkomandi.