Viðburðadagatal fyrir aðventu og jól

Sem fyrr verður gefið út á vegum Dalvíkurbyggð viðburðadagatal fyrir aðventu og jól. Slíkt dagatal hefur nú verið gefið út um nokkurt skeið og er það borið út í öll hús í sveitarfélaginu. Þeir sem hafa áhuga á því að koma að viðburði í dagatalið er vinsamlegast beðnir um að senda upplýsingar fyrir 15. nóvember 2014 á netfangið margretv@dalvikurbyggd.is. Auk þess að vera borið í hús fara allir viðburðir í dagatalinu inn á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.