Viðburðadagatal aðventu og jóla

Viðburðadagatali Dalvíkurbyggðar, með dagskrá á aðventu og yfir jól og áramót, verður dreift á öll heimili og fyrirtæki á morgun. Þar kennir ýmissa grasa, dagskráin fjölbreytt og skemmtileg og ýmislegt samkvæmt hefð eins og vera ber á þessum árstíma. Þar er eitthvað að finna til skemmtunar fyrir alla aldurshópa, fjöldi tónleika í boði og tímasetningar aðventustunda og hátíðarguðsþjónusta í kirkjunum koma fram í viðburðadagatalinu.

Einnig er fólki bent á viðburðadagatalið á forsíðu dalvik.is, en allir viðburðir hafa verið færðir inn þar.

Viðburðadagatal aðventu og jóla 2010 má nálgast hér.