Við opnum allar gáttir

Laugardaginn 16. janúar næstkomandi munu Menningar- og listasmiðjan, Náttúrusetrið og Yogasetrið Húsabakka í Svarfaðardal opna húsin og kynna starfsemi sína. Húsin verða opin frá kl. 11:00-13:00.

Ýmislegt áhugavert verður á döfinni á komandi mánuðum og hvetjum við alla til að líta inn.

Verið öll hjartanlega velkomin!