Vetraropnun á byggðasafninu Hvoli

Byggðasafnið Hvoll fer nú í sinn árlega vetrardvala en safnið er opið fyrir gesti á laugardögum kl. 14:00 – 17:00 fram til 1. júní. Hægt er þó að fá safnið opnað eftir samkomulagi við forstöðumann irisolof@dalvikurbyggd.is  .

Yfir vetrartímann eru ýmis verkefni unnin á safninu og sem dæmi er núna verið að skrá gripi safnsins í Sarp sem er sameiginlegur gagnagrunnur safna á landsvísu. www.sarpur.is. Sláið inn byggðasafn Dalvíkurbyggðar Hvoll og þeim grip sem þið hafið áhuga á að vita meira um.

Byggðasafnið hefur staðið fyrir húsaskráningu og hefur hvert hús byggt fyrir 1950 verið skráð og hægt verður að nálgast upplýsingar um þau hús á heimasíðum byggðasafnsins og Dalvíkurbyggðar. Að vísu er verið að uppfæra heimasíður sveitarfélagsins en þegar þeirri vinnu lýkur þá skuluð þið endilega skoða húsaskráninguna og varðveislumat húsa.

Í vetur verður hægt að skoða litla sýningu byggðasafnsins á 2.h Ráðhússins. Björk Hólm, sem vinnur við skráningu gripa í Sarp, setti upp litla sýningu um gripi sem tengjast íslenska hestinum. Sýningin er opin á opnunartíma ráðhússins en það er opið alla virka daga. 

Eins og áður verða litlu sýningarkassarnir í Bergi á vegum safnsins og nú eru sýndir gripir þar sem Steinunn Sigurðardóttir gaf safninu.

Ef að fást styrkir í verkefni verða m.a textar sýninga þýddir á ensku þar sem að heimsóknir erlendra gesta hafa aukist verulega og er kallað eftir enskum textum.