Vetrarleikar Krílakots og

Vetrarleikar Krílakots og

Vetrarleikar Krílakots og Kátakots 2016 voru haldnir í dag í blíðskaparveðri. Búið var að troða brautir í Kirkjubrekkunni og færið því með besta móti. Að þessu sinni var það Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri, sem renndi sér fyrstu ferðina og opnaði þar með vetrarleikana. Vinabekkur leikskólanna, 5. bekkur í Dalvíkurskóla koma og aðstoðaði á leikunum.