Verndum þau - námskeið

Ungmennasamband Eyjafjaðar, í samstarfi við Æskulýðsvettvanginn, mun standa fyrir námskeiðinu "Verndum þau" á Dalvík og Hrafnagili.

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem koma að uppeldi barna og ungmenna.
Farið verður yfir hvernig bregðast eigi við vanrækslu og/eða ofbeldi gegn börnum og unglingum. Námskeiðið er byggt á bókinni Verndum þau.

Á námskeiðinu verður farið yfir:
• Tilkynningaskyldu starfsmanna sem vinna með börnum og unglingum.
• Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi og vanrækslu hvers konar.
• Úrræði sem í boði eru í samfélaginu fyrir börn og unglinga sem eru þolendur ofbeldis.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

13. nóvember Dalvíkurskóli, kl. 16:30-19:30.

Skráning fer fram í tölvupósti: umse@umse.is  og í síma: 868-3820 Skráningarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 12. nóvember.

Við hvetjum sem flesta til þess að skrá sig og mæta á námskeiðið.

Frekari upplýsingar veitir skrifstofa UMSE.