Verndum fuglalífið

Nú er fuglalífið í miklum blóma í Friðlandinu, austur á sandi og í Höfðanum.
Við viljum því biðja ykkur að sýna varkárni á þessum svæðum og þá sérstaklega að draga úr umferðarhraðanum þegar komið er inn í Dalvík við Hrísatjörn.

Vakin er athygli á því að nú yfir varptímann er öll umferð vélknúinna bifhjóla bönnuð á Sandinum austan við gámasvæðið og önnur umferð takmörkuð við þá sem nauðsynlega þurfa að fara þar um.


Gleðilegt sumar

Umhverfis- og tæknideild