Verkefnið “Hjólað í vinnuna” hefst í dag

Verkefni ÍSÍ „Hjólað í vinnuna" fer af stað í dag miðvikudaginn 6. maí og stendur til 26. maí. Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarátakinu "Hjólað í vinnuna".

Meginmarkmið átaksins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Starfsmenn vinnustaða hér á landi hafa tekið vel við sér því þátttakan hefur margfaldast þau sex ár sem verkefnið hefur farið fram. Í upphafi stóð átakið yfir í eina viku, næstu þrjú ár í tvær vikur og á síðasta ári var það í þrjár vikur.


Hjólað í vinnuna er gott tækifæri til að auka samheldni og heilbrigði starfsmanna. Til að gera keppnina enn skemmtilegri er tilvalið að skora á aðrar deildir, vinnustaði, samkeppnisaðila og sveitarfélög í heilbrigða samkeppni.

Starfsmenn á bæjarskrifstofu Dalvíkurbyggðar hafa þegar myndað tvö keppnislið sem ætla að taka þátt og skora á aðra að gera slíkt hið sama.