Verkefnastyrkur til menningarstarfs

Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli samnings menntamálaráðuneytisins og iðnaðarráðneytisins við Eyþing frá 27. apríl 2007. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Norðausturlandi. Menningarráðið leggur jafnan áherslu á að þau verkefni sem hljóta styrki efli á einhvern hátt samstarf og/eða samvinnu í menningarmálum á Norðausturlandi eða dragi fram menningarleg sérkenni svæðisins. Auk þessa hefur ráðið ákveðið að árið 2009 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða.

  • Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðalaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja saman Norðurland.
  • Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum og leikmanna
  • Verkefni sem hvetja til samvinnu ólíkra þjóðarbrota í samstarfi við Íslendinga. Verkefnin geta tengst tónlist, danslist, myndlist, bókmenntum og fl.
  • Verkefni sem efla þekkingu og fræðslu á sviði menningar og lista
  • Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og listar

Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar. Úthlutun fer fram í mars. Styrkþegar verða að hafa skilað inn greinargerð vegna fyrri verkefna til þess að geta sótt um vegna ársins 2009. Verkefnum sem hljóta styrki þarf að vera lokið fyrir árslok 2009.

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings www.eything.is eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu 29, 3. hæð. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur Menningarráðs á heimasíðu Eyþings. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is