Verkefnastyrkir til menningarmála

Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli  samnings menntamálaráðuneytisins og samgönguráðuneytis við Eyþing. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á svæði Eyþings.

Menningarráð Eyþings hefur ákveðið að árið 2008 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

  • Verkefni sem vekja athygli á sögustöðum og menningartengdum viðburðum, t.d. með tilliti til ferðaþjónustu
  • Verkefni sem efla þekkingu á sögu og sérkennum svæðisins
  • Verkefni sem stuðla að þátttöku sem flestra og brúa kynslóðabil
  • Verkefni sem fela í sér samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina sem og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað
  • Verkefni sem fela í sér nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs

Umsóknarfrestur er til og með 3. mars.  Úthlutun fer fram í apríl.

Verkefnum sem hljóta styrk árið 2008 þarf að vera lokið í janúar 2009. Úthlutun Menningarráðs vegna ársins 2009 mun fara fram í janúar það ár.

Nánari upplýsingar ásamt úthlutunarreglum má finna á heimasíðu Eyþings http://www.eything.is/

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings http://www.eything.is/ eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu  29, 3. hæð.

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is


Í tengslum við úthlutunina verður menningarfulltrúi með viðveru í Ráðhúsinu Dalvík fimmtudaginn 7. Febrúar kl. 13 - 14.30.

Sama dag mun menningarfulltrúi vera með kynningu á verkefnisstyrkjum menningarráðs Eyþings ásamt því að fara yfir hagnýt atriði við ritun umsókna.  Kynningin verður haldinn í Menningar- og listasmiðjunni Húsabakka kl. 16.30. Allir velkomnir.