Velferðarsjóður barna og ungmenna í Dalvíkurbyggð

Velferðarsjóður barna og ungmenna í Dalvíkurbyggð er sjóður sem stofnaður er af íþrótta- og æskulýðsráði Dalvíkurbyggðar. Markmið sjóðsins er að styðja börn og ungmenni á aldrinum 6-18 ára, með lögheimili í Dalvíkurbyggð, sem vegna tímabundinna aðstæðna hafa takmarkaðan aðgang að íþrótta- og æskulýðsstarfi. Sjóðurinn styrkir að jafnaði ekki fleiri en eina íþrótt hjá hverju barni.

Dæmi um útjögld sem eru mögulega styrkhæf:

  • Styrkur til þátttöku í íþróttastarfi með fjárhagslegum stuðningi við æfingargjöld
  • Styrkur til þátttöku í keppnis- og æfingaferðum á vegum íþróttafélaga eða félagsmiðstöðvar
  • Styrkur til búnaðarkaupa

Tekið er við umsóknum á skrifstofu íþrótta- og æskulýðsfulltrúa.

Velferðasjóður barna- og ungmenna