Vel mætt á Tjaldsvæði Dalvíkur

Vel mætt á Tjaldsvæði Dalvíkur

Nú þegar er vel mætt á Tjaldsvæði Dalvíkur í aðdraganda Fiskidagsins mikla. Aðaltjaldsvæðið er orðið þétt setið en enn er nóg pláss fyrir þá ferðalanga sem hafa áhuga á að deila með okkur gleðinni á komandi dögum. Skipulögð tjaldsvæði verða á fjórum stöðum og verður gæsla á þeim öllum frá og með morgundeginum. Afslöppuð og þægileg stemmning einkennir andrúmsloftið á Dalvík í blíðskaparveðri, sól og tæplega 20 stiga hita.Frekari upplýsingar er að finna í fiskidagsblaðinu og einnig hér.