Vel heppnuð ör-ráðstefna

Vel heppnuð ör-ráðstefna
Samkvæmt tölulegum gögnum af Facebook eftir beinu útsendinguna sem fór fram á síðu sveitarfélagsins náði efni fundarins þegar þessi frétt er skrifuð í heildina til um 811 einstaklinga, þó líklegt sé að ekki hafi allir staldrað við alla ráðstefnuna. Um 21 tók þátt inn á tengli fundarins og hafði þá tök á að svara spurningum sem SSNE lagði fyrir inn á milli erinda.
 
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar ávarpaði fundargesti og þakkaði atvinnumála- og kynningaráði og þjónustu- og upplýsingafulltrúa fyrir að koma þessari ráðstefnu á. Þá sendi hún einnig þakkir til starfsmanna SSNE fyrir þeirra þátttöku í fundinum. Efni fundarins kom beint úr þeim hluta atvinnustefnu sveitarfélagsins sem tekur mið af að fá unga fólkið okkar aftur heim og sjá atvinnutækifærin sem eru til staðar í Dalvíkurbyggð.

Þar á eftir kom síðan Vífill Karlsson, hagfræðingur, ráðgjafi og dósent við Háskólann á Akureyri. Hann kynnti fyrir fundargestum niðurstöður íbúakönnunar sem íbúar á Norðausturlandi voru fyrst núna að taka þátt í. Erindi Vífils bar heitið Það er fleira en friðsæld í Dalvíkurbyggð. Niðurstöðurnar komu vel út fyrir Eyjafjörð og Akureyri en þessir tveir staðir eru í öðru og þriðja sæti yfir heildina yfir þau atriði sem sérstaklega var verið að sækjast eftir svörum við. 
 
Eftir að Vífill hafði lokið máli sínu sat Björk Hólm Þorsteinsdóttir fyrir svörum í erindi sínu Að heiman og aftur heim. Hún talaði um hvernig það hefði verið að taka ákvörðun um að flytja aftur heim og byggja sitt líf upp með fjölskyldunni á Dalvík. Þá kom hún einnig inn á það hvernig það kom til að hún og maðurinn hennar stofnuðu eigið fyrirtæki Runia ehf. og tækifærin sem eru allt í kringum okkur.
 
Við skelltum einnig í smá myndband af svörum nokkurra barna við spurningum okkar og þar má sjá þó nokkur gullkornin.
 
Því næst hélt Íris Hauksdóttir, þjónustu- og upplýsingafulltrúi. erindi sitt Er Dalvíkurbyggð að leita að þér?  Þar fór hún yfir helstu upplýsingar sem nauðsynlegt er að vita um Dalvíkurbyggð og það hvaða atvinnutækifæri eru fyrir hendi nú þegar í Dalvíkurbyggð. Þá kom hún inn á í erindi sínu að í Dalvíkurbyggð séu skv. Byggðastofnun 7 laus skrifstofuhúsnæði fyrir einstaklinga sem sinna störfum án staðsetningar. Óformleg spurningakönnun var send út á Instagram reikningi sveitarfélagsins þar sem spurt var: Hvaða fyrirtækjaþjónustu finnst þér vanta í Dalvíkurbyggð? og Hvaða þjónustu sækir þú utan sveitarfélagsins. Mörg svör voru lík og jafnvel alveg eins og hér má sjá dæmi um nokkur þeirra en hafið í huga að þetta er ekki tæmandi listi.
Bakarí  -  Ísbúð  -  Aukin tannlæknaþjónusta  -  Fleiri sjúkraþjálfarar  -  Þjónusta við dýr  -  Lengri opnun veitingastaða
 
Að lokum sat Freyr Antonsson fyrir svörum í erindi sem bar heitið Hvað get ég gert? en hann situr ekki oft auðum höndum. Þau hjónin hafa nýlega keypt aftur til baka hvalaskoðunarfyrirtæki sem þau settu á laggirnar fyrir allmörgum árum. Freyr fékk nokkra aðila með sér í það frábæra verkefna að gera skautasvell við íþróttamiðstöðina sem tókst svo vel að nú hefur foreldrafélag Dalvíkurskóla safnað fyrir og keypt 100 pör af skautum og hjálma og kylfur. Í erindi Freys tiltók hann ýmislegt sem hann sem frumkvöðull getur gert og hvað það sé nauðsynlegt að bíða ekki eftir því að aðrir geri hlutina fyrir þig.


Ekki var mikið um spurningar úr sal en Kristinn Ingi Valsson stóð sig með stakri prýði sem fundarstjóri og dagskránni lauk um kl. 18.05.
Við þökkum öllum þeim sem mættu hvort sem er á fundinn beint eða á facebook.

Fyrir áhugasama má nálgast upptöku af ráðstefnunni á facebook síðu Dalvíkurbyggðar.

Við hjá Dalvíkurbyggð sendum kærar þakkir til allra þeirra sem lögðu hönd á plóg til að gera þetta mögulegt.