Veðurspá veðurklúbbsins að Dalbæ fyrir desember 2009

Fundur var haldinn í veðurklúbbinum að Dalbæ 1. desember síðastliðinn. Klúbbfélagar voru nokkuð sáttir við nóvemberspána. Fullt tungl verður 2. desember. Nýtt tungl kviknar 16. desember í suðsuðaustri, svokalla jólatungl.  

Fundarmenn töldu að desember yrði svipaður og síðustu tveir mánuðir. Meira um austlægar áttir sem eru venjulega hlýlegar. Mánuðurinn all sveiflukenndur en frekar mildur m.v. árstíma.

Jólakveðjur frá Veðurklúbbnum Dalbæ.