Veðurspá Veðurklúbbsins á Dalbæ fyrir septembermánuð

Nú hefur Veðurklúbburinn á Dalbæ gefið út veðurspá sína fyrir september 2009 en fundur var haldinn í klúbbnum 31. ágúst síðastliðinn. Félagar hrópuðu ekki “húrra” fyrir ágústspánni sem fór nánast í vaskinn. Þeir töldu að upp úr næstu helgi 3.-5. september munu koma nokkrir góðir dagar en um nýtt tungl, föstudagstungl, muni veðrið batna til lengdar.  Tunglið kviknar í vestri kl 18:44.

Eitt sérálit kom fram þar sem fram kom að þessi mánuður yrði allur jafnleiðinlegur.

En hafið samt gleðilegar göngur.



Fjallatinda fölnar mynd
femir á tind og hjalla.
Haustið bindur haga kind
heima við grindur stalla

Með kveðju.
  
Veðurklúbburinn Dalbæ.