Veðurspá Veðurklúbbsins á Dalbæ fyrir desembermánuð

Veðurspá Veðurklúbbsins á Dalbæ fyrir desembermánuð

Þriðjudaginn 6. desember 2016 komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar. Þar sem í mörgu var að snúast á jólaföstu voru fundarmenn óvenjufáir eða 7 talsins. Að vonum voru klúbbfélagar mjög ánægðir með hversu sannspáir menn voru varðandi veður í nóvember. Nýtt tungl kviknaði 29. nóv. og svo sem getið var um í síðustu spá er það ráðandi fyrir veðurfar í desember. Næst kviknar tungl 29. des. í austri og er það jólatungl. Jafnvel má búast við breytingum á veðri upp úr því. Í megindráttum verður veður í desember svipað og það hefur verið undanfarið, margátta og hlýtt m.v. árstíma. Jól og áramót verða flekkótt en engin illviðri.

Veðurvísa desember mánaðar.

Þó desember sé dimmur,
þá dýrðleg á hann jól.
Með honum endar árið,
og aftur hækkar sól.


Með bestu óskum um gleðileg jól.
Veðurklúbburinn á Dalbæ