Veðurspá Veðurklúbbsins á Dalbæ

Veðurklúbburinn á Dalbæ hefur sent frá sér veðurspá sína fyrir desember 2012 en fundur var haldinn í klúbbnum 4. desember síðastliðinn.

Spáin er svohljóðandi:


Tungl kviknar þann 13. des. 2012 kl. 08:42 – jólin eru því í vaxandi tungli, sem þykir boða gott árferði. Látið er fylgja vísukorn þessu til áréttingar.

“ Hátíð jóla hygg þú að,
hljóðar gamall texti.
Ársins gróða þýðir það,
ef þá er tungl í vexti “

Fundarmenn ætla að veðurfar verði með ágætum í desember, þó svo að það verði smávægilegar umhleypingar. Ekki er reiknað með mikilli úrkomu þó svo að slíti úr honum annað veifið. Tungl er vaxandi til 28. desember.

Jólakveðjur,

Veðurklúbburinn á Dalbæ.