Veðurspá Veðurklúbbs Dalbæjar

Haldinn var fundur í Veðurklúbbi Dalbæjar,  fyrir apríl 2013, þann 4. apríl kl. 14:00 í betri stofu Dalbæjar.

Fundarmenn eru mjög ánægðir með hvernig til tókst með veðurspá fyrir mars mánuð.

Hvað varðar næstu framtíð, það er veðurhorfur í aprílmánuði þessa árs, þá er fyrst til að taka að tungl kviknar þann 10. apríl n.k. í SA kl. 09:35 og er það fyrsta sumartungl. Áttir verða því að mestu suð – og austlægar. Einn veðurspámaður átti von á að eftir 10. apríl komi hlýindakafli sem minni verulega á sumarið hvað hitastig snerti. Fólk Veðurklúbbsins er almennt bjartsýnt á veðurfar í sumar en mun að sjálfsögðu gera frekari grein fyrir hverjum mánuði fyrir sig.


Með góðri kveðju og væntinga um batnandi tíð.


Veðurklúbburinn á Dalbæ