Veðurspá októbermánaðar frá Veðurklúbbnum á Dalbæ

Þriðjudaginn 1. október var fundur haldinn í Veðurklúbbi Dalbæjar. Fundurinn hófst kl. 14:00 og voru fundarmenn 12 talsins.


Farið var yfir tunglkomur og tunglfyllingar í mánuðinum.


Gert er ráð fyrir að októbermánuður verði frekar hlýr þó komið geti ein og ein rumba í mánuðinum. Ástæða fyrir þessari spá er m.a. að októbertungl kviknar 5. þessa mánaðar kl. 00:35 í há norðri. Liðna mánuði hefur vindur oftar ekki staðið í þá átt sem tungl kviknar í mánuðinum. Einnig styður skýjafar þessar veðurvæntingar. Margt annað styður þessa spádóma svo sem draumar og önnur atriði sem ekki verður upplýst frekar um.


Ekki er reiknað með mikilli snjókomu í október þannig að til vandræða horfi.


Til lengri tíma reikna fundarmenn með frekar góðri tíð fram að jólum en munu að sjálfsögðu spá nánar fyrir um það þegar nær dregur.


Með haust og sláturtíðarkveðju,

Veðurklúbburinn á Dalbæ