Veðurspá maí mánaðar frá veðurklúbbnum á Dalbæ

Fundur var haldinn hjá Veðurklúbbnum á Dalbæ mánudaginn 30. apríl 2012 og hófst hann kl. 15:00.

Fundarmenn voru nokkuð ánægðir með aprílspána þó svo að tíð hafi verið heldur kaldari en ráð var gert fyrir. Það frávik er fyllilega innan skekkjumarka.

Tungl kviknar 20. maí í N.N.V. kl. 23:47 og er sunnudagstungl. Hætt er við að óstöðugar áttir verði í maí en mánuðurinn alls ekki afleitur hvað sólfar og hitastig snertir.

Annars voru fundarmenn bjartsýnir á veður í sumar en munu gera nánari grein fyrir því í upphafi hvers mánaðar.

Með sumarkveðju og þökk fyrir veturinn

Veðurklúbburinn á Dalbæ.