Veðurspá júnímánaðar frá Dalbæ

Veðurspá fyrir júní 2010


Klúppfélagar voru mjög sáttir við maíspána og töldu að hún hefði í meginatriðum gengið eftir.

Júnítungl kviknar 12. júní kl. 11:15  í súðaustri á laugardegi.  Júní mánuður verður heldur skárri en maí.  Fullt tungl verður fimmtudaginn 27. júní og mun þá hlýna ofurlítið, en engin almennilegur hiti.

“ Nú er úti nepja köld
og neitar bara að hopa.
Sé ég marga mey og höld
meður sultardropa. “

“ Skartar lítið lauf á viði
og leikur sér í golunni.
Betra er þó að fá í friði
fast að sitja í holunni. “


Með sumarkveðju,

Fimmtudagur 25. maí 2010
Veðurklúbburinn á Dalbæ.