Veðurspá fyrir júlímánuð frá Veðurklúbbnum á Dalbæ

Fundur var haldinn í Veðurklúbbi Dalbæjar í byrjun júlí og í framhaldi af honum gefin út veðurspá. Tungl kviknar 19. júlí í N.A. kl. 04:04. Áttir verða rokkandi í mánuðinum, en fundarmenn eru bjartsýnir á veðurfar í mánuðinum hvað hitastig varðar og telja að þó svo að áttir verðir misvinda þá verði suðlægar áttir fremur ríkjandi. Ennfremur verði mánuðurinn fremur votviðrasamur og hiti yfir meðallagi.

14. fundarmenn sátu fundinn og að loknum spádómum var skálað í jegermaster.

Kveðja

Veðurklúbburinn á Dalbæ.